EY-LÍV
Félag vélsleðamanna í Eyjafirði, EY-LÍV, var stofnað í Blómaskálanum Vín 9. nóvember 1995 en í mörg ár þar á undan höfðu eyfirskir vélsleðamenn hist á haustin til að stilla saman strengina fyrir veturinn. EY-LÍV er sjálfstætt félag og aðili að Landssambandi íslenskra vélsleðamanna, LÍV. Þeir sem ganga í EY-LÍV eru þar með sjálfkrafa félagar í LÍV.
Með því að gerast félagi tekur þú þátt í að gæta hagsmuna okkar allra. Á hverjum vetri stendur EY-LÍV fyrir margskonar uppákomum, félagsferðum við allra hæfi, fræðslufundum og námskeiðum. Einnig hefur félagið tekið þátt í að niðurgreiða öryggisbúnað fyrir félagsmenn sína.
Stjórn Félags vélsleðamanna í Eyjafirði 2018-2019.
Benedikt Ásmundsson | Formaður | Sími: 892-5543 |
Hólmgeir Sigurgeirsson | Gjaldkeri | Sími: 664-3661 |
Ívar Már Halldórsson | Stjórnarmaður | Sími: 771-2565 |
Marinó Þór Jónasson | Varaformaður | Sími: 845-8586 |
Sigvaldi Gunnlaugsson | Ritari | Sími: 893-9516 |
Varamenn:
Aðalbjörn Tryggvason | Varamaður | Sími: 865-7229 |
Jón Axel Helgason | Varamaður | Sími: 662-1695 |
Benedikt, Gunnar Örn og Tryggvi Tryggvason eru í stjórn LÍV fyrir hönd EY-LÍV
Vert er að fylgjast vel með hér á heimasíðu LÍV og á spjallvefnum í vetur því ýmsar uppákomur geta orðið með stuttum fyrirvara, s.s. kvöldtúrar, grill á Glerárdal og margt annað spennandi.
FRÉTTIR - EY-LÍV
Vetrarlíf 2020 +1
Félagsfundur Ey-LÍV
Kerlingarfjöll 2021
Aðalfundi LÍV frestað
Aðalfundur Ey-LÍV
Aðalfundur LIV
Stjórnunar og verndaráætlun Friðlands að fjallabaki
Við mótmælum öll!
Tilkynning frá stjórn LÍV
Sýning Arctic cat 2020
Aðalfundur EY-LÍV 2019
Aðalfundur LIV 2019
VIÐBURÐIR - EY-LÍV
Engir viðburðir á næstunni.