Fréttir, Fréttir LÍV EY, Fréttir LÍV RVK, Fréttir LÍV SNÆ

Landsmót LÍV 2026 Kerlingarfjöllum

Landsmót LÍV 2026 í Kerlingarfjöllum

Við höldum uppteknum hætti og höldum landsmót LÍV í Kerlingarfjöllum helgina 10. – 12. apríl 2026. Gisting er bókuð í gegnum vefsíðu Kerlingarfjalla í þessum tengli  — BÓKA —

Fyrstir bóka, fyrstir fá reglan gildir svo það þarf að hafa hraðar hendur. Við bókun gefa menn upp greiðslukort en ekkert er dregið af því fyrr en 14 dögum fyrir mótið.

Föstudagskvöld:
Hægt að kaupa sér kjötsúpu á staðnum

Laugardagskvöld:
Forréttur: Humarsúpa

Aðalréttur: Nautalund með bernaisesósu, kartöflum, brokkolí og sveppum

Eftirréttur: Hafracrumble, jarðaber og vanilluís

Verð á mann: 11.900kr

Laugardagskvöldverður er greiddur með gistingu. Ath ef það eru séróskir (ofnæmi) þá þarf að hafa beint samband við hótelið.

Sigvaldi Helgi Gunnarsson trúbador mun halda uppi stuðinu á laugardagskvöldið.

Með von um góða þátttöku, Stjórn LÍV