Fréttir

EY-LÍV ÖRYGGISSTYRKUR 2024

NÚ ENDURTÖKUM VIÐ LEIKINN !!!

 

EY-LÍV félagsmenn.

 

Okkur er umhugað um þitt öryggi (sem og annara 🙂 )
Með því að eiga, nota, kunna á og hafa með ertu ekki að bara að bæta öryggi þitt heldur allra sem þú ferðast með eða kemur að. Það er lítið vit í að vera með öryggisbúnað sjálfur, lenda í flóði og félaginn getur ekkert gert því hann er ekki með rétta búnaðinn.

 

HUGSAÐU MEÐ HVERJUM ÞÚ ERT AÐ FARA – ERU ÞEIR ÚTBÚNIR TIL AÐ BJARGA ÞÉR!

 

EY-LÍV styður félagsmenn sýna með styrk í kaup á snjóflóðastöng, snjóflóðaskóflu, snjóflóðaýli, hjálm eða snjóflóðapoka. Þú kaupir einn, nokkra eða alla þessa hluti og EY-LÍV styrkir þig um 50% en að hámarki 35.000kr.

 

Skilyrði eru að:
þú þarft að hafa borgað félagsgjald
þú þarft að versla sem einstaklingur, ekki vsk no
þú þarft að kaupa af innlendum birgja/söluaðila
þú þarft að senda bankaupplýsingar með
þú þarft að senda afrit af nótu á eyliv@liv.is
<p> 
Endilega deilið á félaga EY-LÍV
<p>
Með snjókveðjum
stjórn EY-LÍV