Fréttir

Hlíðarfjall opið með skilyrðum

Af ótrúlegri góðmennsku og skilningi hafði rekstrarstjóri Hlíðarfalls samban við mig og bauð okkur að fara að nota skíðasvæðið til að komast á fjöll. Þetta er vegna góðrar samvinnu við skíðastaði síðustu ár að nú er okkur gefinn griður fyrr en síðustu ár. Þetta er þó skilyrðum háð. Æfingar standa yfir og því þarf að gæta yfirvegunar og varfærni þegar keyrt er um skíðasvæðið. Að öðrum kosti eigum við á hættu að glata þessu einstaka tækifæri sem opnar nú sleðaaðgengi að Glerárdal og tengdu umhverfi. Það sem við þurfum að hafa í huga fram yfir 20. maí er:

1. Æfingar standa yfir þriðjud + fimmtud 17-19 & laugard 9-11
2. Keyra sunnan (vinstra ?) við skíðasvæðið

3. Keyra rólega, hljóðlega og spara tryllinginn þar til upp er komið (háværaseggir bíði þar til æfingu lýkur)

Endilega berið boðskapinn og umfram allt fræðið ykkar fólk um þessar reglur. Það er bara með góðri hegðun að við fáum að nota þetta svæði og það eru forréttindi sem við skulum ekki glata.

Samstöðukveðja frá Ey-LÍV

PS: Sneiðingurinn er eins og malbikaður með snjó fyrir þá sem vilja auðveldu leiðina upp ?