Almennt - žrišjudagur 04.maķ 2010 - Gulrótin - Lestrar 187 -
Athugasemdir (0)

Kæru Skidoo og Lynx eigendur Eins og alþjóð veit tók Ellingsen yfir Skidoo umboðið á vormánuðum 2009 og fylgdu því
auðvitað gamlar hefðir. Frá 1993 hafa Ski Doo eigendur fjölmennt á Vatnajökul í lok maí og mun Ellingsen að sjálfsögðu halda
þá hefð í heiðri og auðvitað bjóða Lynx litla bróður með . Eins og undanfarin ár varð Uppstigningardagur fyrir valinu og munum
við fjölmenna austur dagana 13-15 maí. Gerum við ráð fyrir að keyra dagstúra á jöklinum og koma tilbaka í Jöklasel fyrir
kvöldmat báða dagana. Eins verður boðið upp á stutta dagstúra laugardaginn 15 ef veður leyfir. Þar sem brottför er fyrirhuguð kl. 09,00
á fimmtudeginum mælum við með að menn keyri austur á miðvikudagskvöldi. Að sjálfsögðu verða ýmis skemmtiatriði í
boði fyrir þreytta ferðalanga m.a samhliðabraut og spyrnukeppni en heyrst hefur að Stálmúsin frá Egilsstöðum hafi notað veturinn til að
skrúfa og mæti tvíefldur til varnar titlinum frá því í fyrra. Að vanda verða tveir gistimöguleikar í boði. Annarsvegar
Bændahótelið að Smyrlabjörgum og kostar gistinóttin þar 5000 kr með morgunmat í tveggjamanna herbergjum, hins vegar er hægt að gista
í svefnpokaplássi í Jöklaseli og er gistingin þar með morgunmat 2900kr. Að kvöldi Uppstigningardags sláum við svo upp veislu og
verðlaunaafhendingu þegar úrslit liggja fyrir og skemmtum okkur saman fram eftir kvöldi en heyrst hefur að strákarnir á verkstæðinu séu
með eitthvað óvænt í pokahorninu. Gjaldið fyrir 3ja rétta máltíð er 4800kr pr.mann. Að auki fá þeir sem skrá sig
3000kr gjafabréf í Ellingsen. Nauðsinlegt er að skrá sig sem fyrst enda hefur ásókn í ferðina ávallt verið góð og
takmarkað gistipláss í boði. Skráning fer fram í síma 580-8509 og í tölvupósti arnarm@ellingsen.is Þeir sem ætla að gista
á Smyrlabjörgum þurfa að bóka gistingu hjá Laufeyju í síma 478-1074 En starfsmenn Ellingsen munu bóka gistingu í Jöklaseli.
Sleðakveðjur Starfsfólk Ellingsen